Heim arrow Líkamsrækt arrow Uppskriftir arrow Kjúklingaréttir
 

Innskráning
Notendanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

Kjúklingaréttir  
Íranskur kjúklingur

 

(fyrir 4)

 

Hráefni:
1,35 -1.8 kg skinnlaus kjúklingur
1 sítróna eða lime, fjórðungar
½ tsk salt
½ tsk svartur pipar
½ tsk turmeric
4 msk olía
2 hvítlauksgeirar, skornir í tvennt
300 ml vatn
½ tsk salt
2 lárviðarlauf
3 kardimommur

 

Aðferð:
  1. Nuddið kjúklinginn að innan og utan með sítrónu eða limefjórðungunum, geymið þá að því loknu
  2. Einnig er mjög gott að hluta kjúklinginn í 8-10 bita, taka skinnið af honum og nudda bitana síðan með sítrónu eða lime
  3. Blandið saman salti, svörtum pipar og turmeric og nuddið því inn í kjúklinginn
  4. Hitið olíuna í stórum djúpum potti
  5. Brúnið kjúklinginn á öllum hliðum í olíunni án þess að brenna hann
  6. Kreistið restina af safanum úr sítrónu eða lime yfir kjúklinginn
  7. Bætið út í hvítlauk, vatni, salti, lárviðalaufi og kardimommum
  8. Hitið að suðu, hyljið og sjóðið á vægum hita í 1-1,5 klukkustund, snúið og hrærið upp reglulega
  9. Takið kjúklinginn upp úr pottinum og haldið honum heitum
  10.  Minnkið soðið þar til það er orðið um helmingur af upprunalegu með því að sjóða það hratt á háum hita
  11. Fjarlægið lárviðalauf og kardimommurnar
  12. Hitið kjúklinginn og berið hann fram á hrísgrjónabeði og hellið soðinu yfir
Í hverjum skammti eru 350 hitaeining og ríkulegt magn af próteini og fosfór


Kjúklingastrimlar
með klettasalati og spaghettí

 

(fyrir 4)

 

Hráefni: 
2 msk. ólífuolía
1 hvítlauksrif
1 msk. steinselja
1 tsk. sítrónubörkur
300 g spaghettí
2 kjúklingabringur
1 msk. ólífuolía
1 msk. balsamikedik
70 g klettasalat
2 msk. furuhnetur
salt og svartur pipar

Aðferð:

 

 

  1. Fínsaxið hvítlaukinn og steinsteljuna.
  2. Fínrífið sítrónubörk. Hrærið saman í stórri salatskál ásamt steinselju, hvítlauk og ólífuolíu.
  3. Sjóðið spaghettíið.
  4. Skerið kjúklingabringurnar í strimla. Steikið upp úr ólífuolíu eða grillið.
  5. Hellið balsamikediki út á pönnuna. Látið allan vökva gufa upp.
  6. Saltið og piprið eftir smekk.
  7. Setjið kjúklingastrimla, spaghettí og klettasalat út í salatskálina.
  8. Blandið saman og smakkið til með salti og pipar.
  9. Ristið furuhneturnar og dreifið yfir.
 Í hverjum skammti eru 182 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og fosfór.

 


Ofnbakaðir kjúklingabitar
með kartöflum, rauðlauk og eplum

(fyrir 4)

 

 

 

 

Hráefni:

 

1 kjúklingur hlutaður í 8 bita
2 msk. matarolía
1 msk. sojasósa
salt og svartur pipar
2 rauðlaukar, skornir í báta
8 meðalstórar kartöflur, skornar í tvennt                
 100 g beikon (lúxus beikon)
2 epli, kjarnhreinsuð og skorin í báta,
handfylli af fersku timían eða
1 tsk. þurrkað

 

sósa:

1 dós hrein jógúrt
1 msk. franskt sinnep
1 kúfuð tsk. hunang
salt og svartur pipar 

 

Aðferð:
  1. Stillið ofninn á 180°C. Er einnig hægt að grilla.
  2. Raðið kjúklingalærunum í ofnskúffu.
  3. Hrærið saman olíu og sojasósu. Saltið og piprið. Penslið kjúklingabitana með leginum.
  4. Skerið kartöflur og lauk í báta og dreifið yfir kjúklinginn. Saltið og piprið, sérstaklega kartöflurnar.
  5. Steikið í ofni í 20 mínútur.
  6. Skerið eplin í báta.
  7. Takið úr ofninum og setjið eplabátana saman við. Dreifið timían yfir. Steikið áfram í 15 mínútur.
  8. Hrærið saman jógúrt, sinnepi og hunangi. Smakkið til með pipar og salti. Berið fram með kjúklingabitunum.
Í hverjum skammti eru 384 hitaeininga og ríkulegt magn af próteini og B-vitamíni.

 


 

Ofnbakaðir kjúklingaleggir


með rósmarín, kartöflum, sítrónu og rauðlauk

 

(fyrir 4)

 

Hráefni:

 

8 kjúklingaleggir eða 1 kjúklingur hlutaður niður
600 g góðar kartöflur
2-3 rauðlaukar
1 sítróna

kryddlögur 

 


1 tsk. sítrónubörkur 
2 msk. sítrónusafi

2 msk. ólífuolía 

1 hvítlauksrif, pressað 

1-2 tsk. salt

½ tsk. svartur pipar

1 msk. þurrkað rósmarín

 

Aðferð:

 

 

  1. Stillið ofninn á 225°C. Einnig hægt að grilla.
  2. Afhýðuð kartöflurnar og skerið í báta.
  3. Skerið rauðlauka og sítrónu i báta.
  4. Blandið saman öllum hráefnunum sem eiga að fara í kryddlöginn.
  5. Veltið kjúklingaleggjunum upp úr kryddleginum, vel og vandlega.
  6. Setjið kjúklingaleggi, kartöflur, rauðlauk og sítrónu í eldfast fat.
  7. Penslið laukinn og kartöflurnar með afganginum af kryddleginum.
  8. Steikið í 30- 40 mínútur.
 Í hverjum skammti eru 330 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og C-vítamíni.

Berið fram með fersku salati. 

 


Afrískur kjúklingur
m/kókósmjöli, banönum, rauðum/grænum paprikuræmum og ananas

 

(fyrir 4)

 

Hráefni:

2 msk. matarolía, til steikingar
3 pressaðir hvítlauksgeirar
2 saxaðir laukar
½ tsk. salt
5 tsk. Madras karrí
2 tsk. cuminduft
1 tsk. paprikuduft
¾ tsk. kanill
4 kjúklingabringur
4 msk. matarolía
2 msk. púðursykur  

Aðferð:
  1. Mýkið hvítlauk og lauk í olíu. Blandið þurra kryddinu saman við og hitið vel með lauknum í u.þ.b. 1 mín á góðum hita.
  2. Blandið 4 msk. olíu og 2 msk. púðursykri vel saman við. Látið í skál eða djúpt fat og kælið aðeins.
  3. Skerið kjúklingabringurnar í strimla
  4. Léttsteikið þær á pönnu (ekki gegnelda)
  5. Blandið kjúklingunum saman við kryddblönduna og látið bíða í 20 mín. eða lengur.

     

Sósa:

 

1 dós niðursoðnir tómatar (nota vökvann)
6 msk. sojasósa
2 tsk. edik
½ tsk. salt
1 tsk. pipar
2 dósir hrein jógúrt, blandað saman við í lokinn

 

Aðferð:
  1. Blandið öllu saman í pott þ.e. kjúklingnum og öllu sem á að fara í  sósuna nema jógúrtinni
  2. Sjóðið í 15 mín. eftir að suðan kemur upp.
  3. Látið jógúrtina sjóða með síðustu mínúturnar. Gæta að hún sjóði ekki of lengi.

     

Ofan á:

 

4 msk. kókósmjöl
1 banani
rauðar og grænar paprikuræmur
2 skífur af ananas

 

Aðferð:
  1. Þurrsteikið kókósmjölið, sneiðið bananann og bætið út í kókósmjölið ásamt paprikuræmunum.
  2. Skerið ananasinn í litla bita.
  3. Berið fram í fallegu djúpu fati og látið kókósblönduna og  ananasinn yfir réttinn fyrir framreiðslu.
Í hverjum skammti eru 499 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og fosfór.

 

Berið fram með hrísgrjónum og salati.


Kjúklingaspjót
með ofnbökuðu grænmeti og maischutney
(fyrir 4)

 


Hráefni:

4 kjúklingabringur

 

Kryddlögur:

1 dl hrein jógúrt
1 hvítlauksrif, pressað
½ dl steinselja, fínsöxuð
1 tsk. þurrkað timjan
1 tsk. salt
svartur pipar 

 

Grænmeti:

6 stórar kartöflur, skornar í 1 sm þykkar sneiðar

1 rauð paprika, skorin í bita
1 kúrbítur, skorin í bita

4 vorlaukar

1 tsk. gróft salt

olía

Aðferð:
  1.  Skerið kjúklingabringurnar í tvennt, langsum.
  2.  Hrærið öllu saman sem á að fara í kryddlöginn.
  3.  Leggið kjúklingabitana í kryddlöginn. Geymið í kæli í a.m.k. 4 tíma.
  4.  Stillið ofninn á 225°C. Einnig hægt að grilla.
  5.  Stingið tveimur grillpinnum í hvern kjúklingabita.
  6.  Setjið grænmetið í olíuborna ofnskúffu og saltið.
  7.  Setjið í ofninn og steikið í 15 mínútur og hrærið í.
  8. Leggið þá kjúklingaspjótin yfir grænmetið og steikið áfram í 15 mínútur. 

     

Maischutney
Hráefni:


2 tómatar, fræ- og kjarnhreinsaðir, skornir í bita,
2 dl maísbaunir

2 dl mangochutney

½ tsk salt og svartur pipar

 

Aðferð:

  1. Fræ- og kjarnhreinsið tómatana og skerið í bita.
  2. Blandið maísbaununum og mangochutney saman við.
  3. Smakkið til með salti og svörtum pipar.

     

Í hverjum skammti eru 343 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og C-vítamíni

 


Grænmetis og kjúklingaréttur

 


(fyrir 4)

Hráefni:

2 msk ólífuolía
1 stór sæt kartafla
2 stórir vel þroskaðir tómatar
2 litlir kúrbítar (eða 1 stór)
2 hvítlauksrif
2 gulrætur
3-4 meðalstórar kjúklingabringur
2 msk parmessan ostur
1 dós kryddaðir niðursoðnir tómatar
70 g ostur (helst 17%)
1 tsk.Timían
1tsk. Basilíkum
Sjávarsalt
Ný malaður pipar

 

Aðferð:


  1.  Stillið ofninn á 200 ÚC.
  2.  Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu.
  3.  Skerið kartöfluna, tómatana, gulræturnar og kúrbítinn í þunnar sneiðar og raðið í eldfastamótið.
  4.  Pressið hvítlauksrifin og sáldrið yfir einnig restinni af olíunni. 
  5.  Klippið eða skerið kjúklingabringurnar í þunnar ræmur og leggið yfir grænmetið.
  6.  Hellið niðursoðnum tómötum yfir. (Þarf ekki að nota alla dósina)
  7.  Sáldrið ostinum yfir og kryddið.
  8.  Bakið í ofninum í 40-45 mínútur.
Í hverjum skammti eru um 400 hitaeiningar og ríkulegt magn af trefjum og próteini.

fotur