Heim arrow Líkamsrækt arrow Uppskriftir arrow Pastaréttir
 

Innskráning
Notendanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

Pastaréttir  

Pastasalat

(Fyrir 4)

Hráefni:

150 g pasta

1 rauðlaukur

2 tómatar

¼  hluti gúrka

1 rauð paprika

Grænt salat eftir smekk

75 -100 g ferskur mozzarella

2 harðsoðið egg

3 sneiðar eðal skinka (60 g)

50 g vínber

25 g ristaðar hnetur að eigin vali

½ dl ólífuolía

1 tsk balsamico edik

1 tsk agave síróp

1 tsk  tamari sósa eða soya sósu

Pipar á hnífsoddi

 

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkanum og kælið
  2. Rífið salatið niður og smátt skerið laukinn, papriku og vínber  
  3. Öllu blandað vel saman við pastað og hnetunum einnig
  4. Eggin, tómatarnir og osturinn skorinna í skífur og raðað ofaná
  5. Ólífuolíunni ,edikinu, sírópinu og tamari sósunni blandað vel saman og piprað
  6. Sósunni helt yfir salatið.

 

Í hverjum skammti eru um 120 hitaeiningar og ríkulegt magn af C-vítamíni og fosfór.

Tilvalið að bera fram með grófu brauði og kotasælu.

 

 


Grænmetislasagna
(fyrir 4) 

Hráefni:
2 stk gulrætur
150 g blómkál
150 g spergilkál
100 g sveppir
1 stk blaðlaukur (lítill)
1 stk rauð paprika
2 stk hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
1 tsk oreganó
1 stk grænmetisteningur
½ tsk salt 
svartur pipar
½ dl vatn
lasagna plötur ferskar
1 dl rifinn ostur (17%)
olía til steikin
 

Aðferð:

  1. Þvoið grænmetið, flysjið gulrætur og skerið í bita, skerið kálið í hríslur, blaðlaukinn og sveppina í sneiðar og paprikuna í þunnar ræmur.
  2. Steikið sveppina í örlítilli olíu og saltið og piprið og setjið síðan á disk. Steikið hvítlaukinn og setjið á disk með sveppunum.
  3. Linið blaðlaukinn og paprikuna á pönnunni. Bætið þá öllu hinum grænmetinu út í og smá olíu og linið í stutta stund.
  4. Bætið þá tómötunum, kryddinu, súputeningnum og vatninu út i og látið malla í nokkrar mínútur.
  5. Setjið í eldfast fat þannig að grænmetissósan sé neðst og svo til skiptis lasagna plötur og sósa. (Tvö lög af lasagna og þrjú af sósu).
  6. Stráið rifna ostinum yfir og bakið við 190 ÚC í 30 mín.

 Í hverjum skammti eru 237 hitaeiningar og ríkuleget magn af A- og C-vítamini.

 

Berið fram með volgu heimabökuðu eða keyptu brauði.

 

Ath. Í þessa uppskrift má einnig nota frosna grænmetisblöndu sem fæst í stórmörkuðum.  Þá er uppskriftin mjög fljótleg. Einnig er hægt að setja kotasælu á eftir grænmetissósunni áður en lasagna blað er sett á milli og/eða bæta við 300 g af nautahakki í grænmetissósuna.

 


Pastaréttur
(fyrir 4)

Hráefni:

2 msk olífuolía

500 g heilhveitipasta

1/4 bréf lúxusbeikon

3 hvítlauksrif

1 laukur

Salt eftir smekk

1 tsk sykur eða hunang

1 dós niðursoðnir tómatir (ekki Hunt’s)

basilíka og steinselja

½ chillí

  

Aðferð:

  1. Hvítlaukurinn skorinn ekki of smátt og steiktur á pönnu upp úr olíu.
  2. Látinn krauma þar til hann verður gylltur, tekinn af pönnunni og látinn bíða
  3. Vel saxaður laukur settur á pönnu við góðan hita og látinn krauma þar til hann er gylltur og mjúkur, látinn rýrna vel.
  4. Tómatarnir settir út í, og látnir krauma með ca ½ chillí.
  5. ½ til 1 tsk salt og sykurinn/hunangið sett út í einnig basilíka og steinselja (helst fersk).
  6. Þetta látið sjóða í 20 til 30 mín. á meðan pastað er að sjóða.
  7. Smátt saxað beikon steikt í eigin feiti, henni síðan hellt af og beikonbitarnir settir í sósuna við suðu.
  8. Pasta soðið við góðan hita og 1 msk. olía sett út í vatnið og salt á hnífsoddi.
  9. Parmesanostur rifinn yfir í lokinn þegar pastað er komið á diskinn.

Í hverjum skammti eru 403 hitaeiningar og ríkulegt magn af B1-vítamini og trefjum.

 

Berið fram með fersku salati.


Kalt pastasalat

(fyrir 4)

 

Hráefni:

50 g sólþurrkaðir tómatar (helst ekki í olíu)

3 msk. balsamikedik

3 msk. ólífuolía

300 g pasta (pennepasta)

200 g sveppir eða portobellosveppir

2 litlir sjallottulaukar, skornir í þunna strimla

2 hvítlauksrif, marin

1 msk ólífuolía til steikingar

salt og svartur pipar

þurrkað timían á hnífsoddi

50 g ferskur parmestanostur, gróft rifinn eða þunnt sneyddur

1 dl svartar ólífur

2 búnt klettasalat (ruccola)

 


Aðferð:

  1. Leggið sólþurrkaða tómata í bleyti í 30 mínútur (á ekki við um sólþurrkaða tómata í olíu).
  2. Sneiðið sveppina og steikið þá á pönnu upp úr olíu.
  3. Stráið timíani yfir, saltið og piprið og látið sveppina kólna.
  4. Sjóðið pastað.
  5. Pískið saman ólífuolíu og balsamikediki í stórri salatskál.
  6. Setjið pastað í skálina.
  7. Skerið sólþurrkaða tómata í strimla og setjið þá út í skálina ásamt sjallottulauk og hvítlauk.
  8. Blandið sveppum, parmesanosti og ólífum saman við salatið.

 

Í hverjum skammti eru 467 hitaeiningar og ríkulegt magn af trefja- og steinefnum


(fyrir 4)

Hráefni:

400-500 g Tagliatelle

200 g ricottaostur

1 dl matreiðslurjómi

1 ½ dl mjólk

60 g ostur 17%

ferskt múskat eftir smekk

500 g ferskur aspas, skorinn í bita

salt og svartur pipar

 
 
Aðferð:

 

   1.      Hrærið saman í potti ricottaosti, rjóma, mjólk og  osti.

   2.      Haldið á lágum hita og smakkið til með múskati, salti og pipar.

   3.      Sjóðið pastað.

   4.      Setjið aspasinn út í vatnið þegar 3 mínútur eru eftir af suðutímanum.

   5.      Látið 2 msk. af pastasoðinu út í sósuna. Látið renna vel af pastanu og
           aspasinum.

   6.      Látið aftur í pottinn og hellið sósunni yfir. Hrærið varlega.

 

 

Í hverjum skammti eru 543 hitaeiningar og ríkulegt magn af fosfór og fólasín.

 

Berið fram með fersku salati.

 

Rigatoni  

(fyrir 4)

Hráefni:

 

1 hvítlauksrif

2 msk ólífuolía

400 g niðursoðnir tómatar

2 msk svartar ólífur

1 dós af túnfiski í olíu

1 msk kapers

sjávarsalt

pipar

fersk basilika

400-500 g Rigatoni pasta (eða öðru pasta)

rifinn parmesanostur

 

Aðferð:

  1. Hvítlaukur og ólífuolía sett saman á pönnu og hvítlaukurinn steiktur örstutta stund við vægan hita þar til gylltri áferð er náð.
  2. Tómatar settir útí og hrært, salti og pipar bætt við. Ólífur, túnfiskur, kapers og basilika sett ofaná.
  3. Hrærið ekki í sósunni, en setjið lok yfir pönnuna og látið krauma í 15-20 mínútur.
  4. Pottur fylltur af vatni, smá salti og ólífurolíu sett í vatnið.
  5. Þegar vatnið sýður er pastað sett í og soðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka, eða þar til það er ,,al dente”.
  6. Eftir að vatninu hefur verið hellt af pastanu eru 2-3 ausur af sósunni settar úti yfir pastað og hrært lauslega.
  7. Sósan er svo borin fram í sér fati og sett yfir pastað á hvern disk fyrir sig.
  8. Parmesanostur rifinn yfir.

 

Í hverjum skammti eru um 200 hitaeiningar og ríkulegt magn af  steinefnum og C-vítamíni.  

 


fotur