|
|
|
|
|
|
|
|
|
Kjúklingasúpa (fyrir 4) Hráefni: - 4. kjúklingabringur
- 3 hvítlauksrif, fínt söxuð
- 1 rauður chili-pipar, fínt saxaður
- 10 g rifin fersk engiferrót
- 3 gulrætur, rifnar niður
- 2 epli, rifin niður
- 1 laukur, smátt saxaður
- 2 msk . olía
- 1 msk sterkt karrí
- 2 l kjúklingasoð (vatn og teningar ef ekki er til annað soð)
- 2-3 dl matreiðslurjóma
- 3 msk ferskur kóríander, fínt saxaður
Aðferð:
- Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið þær í smá olíu á pönnu og kryddið með sjávarsalti og pipar.
- Setjið olíu í pott og steikið hvítlauk, chili-pipar, engiferrót, gulrætur, epli og lauk út í.
- Kryddið með karrí og bætið síðan kjúklingasoðinu saman við.
- Látið sjóða i 10 mínútur.
- Maukið súpuna með töfrasprota og bætið síðan matreiðslurjómanum út í.
- Bragðbætið með salti og pipar.
- Að lokum eru kjúklingabitarnir settir út í súpuna og fersku kóríander stráð yfir.
- Berið súpuna fram með grófu brauði.
Í hverjum skammti eru um 330 hitaeiningar og ríkulegt magn af A- og C- vítamíni. Grænmetis sataysúpa (fyrir 4)
Hráefni: Aðferð: - Flysjið kartöflurnar og skafið gulræturnar
- Skerið hvorttveggja í teninga, setjið í pott ásamt vatni og plantaforce
- Kryddið með pipar og salti, sjóðið síðan í 10-12 mínútur
- Bætið síðan grænmetinu í pottinn og sjóðið í 10 mínútur
- Skerið tómatana í bita og setjið þá út í
- Hrærið sataysósunni saman við og látið malla í 4-5 mínútur eftir að suðan kemur upp
- Smakkið og bragðbætið eftir þörfum með pipar og salti
- Súpan er betri eftir því sem hún fær að malla meira
Berið súpuna fram með góðu grófu brauði Í hverjum skammti eru 250 hitaeiningar og ríkulegt magn af A- og C- vítamíni
Frönsk lauksúpa (fyrir 4)
Hráefni: - 400-500 g laukur
- 1 msk. olía
- 1 l kjötsoð eða vatn og súputeningur
- pipar
- chilliduft á hnífsoddi
- 100-150 g brauðostur 17 %
- 4-6 stk ristaðar franskbrauðsneiðar
1 grein steinselja
Aðferð:
Hreinsið og brytjið laukinn jafnt og smátt. Hitið hann í olíunni þangað til hann verður gulbrúnn ( má alls ekki brenna) Bætið 1-2 msk af vatni á laukinn ef hann vill festast við Setjið laukinn út í soðið og sjóðið við vægan hita í ½ -1 klst. Kryddið með salti og chillidufti. Gott er að sjóða steinseljugrein með í súpunni Rífið ostinn og ristið brauðsneiðarnar eins margar og hægt er að raða ofaná súpuskálina/pottinn. Raðið þeim ofan á og þekið með rifna ostinum Bakið strax í 250 CR heitum ofni eða undir grilli þangað til osturinn er bráðnaður og myndast hefur gulbrún ostaskorpa yfir alla skálina. Yfirborð skálarinnar á að vera fyrir ofan miðjan ofn þegar þið bræðið ostinn Í hverjum skammti eru 290 hitaeiningar og ríkulegt magn af steinefnum.
Berið fram með brauði.
Blómkálssúpa (fyrir 4)
Hráefni: - 7 ½ dl vat
1 grænmetisteningur 1/3 dós sveppaostur 400-500 g blómkál steinseljugrein salt og pipar
Aðferð: Hitið saman í potti vatn og grænmetistening Skolið blómkálið og brytjið það niður Hrærið smurostinum saman við soðið Bætið blómkálinu út í og sjóðið þar til það er orðið meyrt klippið steinselju yfir, saltið og piprið Í hverjum skammti eru innan við 100 hitaeiningar og ríkulegt magn af C-vítamíni og fólasín. Berið fram með brauði.
Mexíkósk súpa (fyrir4)Hráefni: - 2 laukar
2 hvítlauksrif ½ flaska granini tómatsafi 3 dl kjúklingakraftur 3 dl kjöt-/grænmetiskraftur 2 súputeningar 1 tsk worchestersósa 1 dósir niðursoðnir tómatar ¼ rauður chillipipar ¼ tsk kóriander ¼ tsk chillikrydd ¼ tsk cayennepipar 2-3 kjúklingabringur (skinnlausar)
Aðferð: Skerið niður lauk og hvítlauk og mýkið á pönnu. Setjið allt hráefnið nema kjúklinginn í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. Því lengur sem súpan sýður, þeim mun betri verður hún. Skerið bringurnar í bita og steikið á pönnu. Setjið kjúklinginn síðan út í súpuna og látið krauma við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. Í hverjum skammti eru 175 hitaeiningar án meðlætis 340 með og ríkulegt magn af C-vítamíni og steinefnum. Meðlæti: - Sýrður rjómi
- Rifinn ostur 17 %
- Dorritos snakk
- Guacamole
Meðlætið sett út í súpuna (hver og einn setur fyrir sig), gott að hafa brauð með.
Fiskisúpa(fyrir 4)
Hráefni: Aðferð:
1. Skerið allt grænmeti smátt niður og léttsteikið það í smjöri, ásamt hvítlauk. 2. Bætið fiskisopinu saman við. 3. Þegar súpan er orðin vel heit er rjómanum bætt saman við og síðan þorskinum sem hefur verið roðflettur, hreinsaður og skorinn í bita. 4. Bragðbætið með salti og pipar. 5. Í lokin er rækjunum og surimi bætt saman við og súpan skreytt með dillinu. Hægt er að nota hvaða fisktegund sem er eftir smekk hvers og eins og eftir tilefninu. |
|
|
Gulrótasúpa (fyrir 4)
|
|
|
|
|
|
|
|
Hráefni: 
- 2 msk. ólífuolía
- 2 hvítlauksrif
- 1 laukur
- 2 sellerístönglar
- 1 tsk engiferduft eða 1 msk ferskt
- 2 msk hveiti
- 12 dl kjúklingasoð (ten + vatn)
- 400 g gulrætur
- 1 tsk karrí
- 1 tsk kúmínduft (cumin)
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1 dl döðlur
- 1 msk sítrónusafi
- 1 dl AB-Mjólk eða súrmjólk
Aðferð: - Hitið olíuna í potti. Merjið hvítlauk, saxið lauk og sellerí og bætið út i ásamt rifnu engiferi. Hitið í 3-4 mínótur í olíunni og hrærið vel. Takið af hitanum og sáltrið hveitinu yfir.
- Hitið í tvær mínótur til viðbótar og hrærið stöðugt í pottinum. Hellið síðan kjúklingasoðinu út í og hrærið vel.
- Rífið gulrætur og bætið út í súpuna ásmt karríi, kúmíndufti og pipar, hleypið síðan upp suðunni.
- Lækkið hitann og látið sæupuna malla í tíu mínótur. Bætið söxuðum döðlum út í og látið malla áfram í fimm mínótur.
- Hellið súpunni í matvinnsluvél og maukið. Hellið síðan í pottinn aftur og bætið sítrónusafanum við og látið malla.
- Ausið súpunni á diska. Setjið 1 msk. AB-mjólk eða súrmjólk á hvern disk, má líka skreita með steinselju.
Í hverjum skammti eru um 250 htiaeiningar og rikulegt magn af trefjum og A-vítamíni. Gott er að bera súpuna fram með grófu brauði og kotasælu. |
|
|
Kjúklingasúpa Lóu (fyrir 4)
|
|
|
|
|
|
|
|
Hráefni: 3-4 kjúklingabringur 3 rauðar paprikur 1 Laukur 1 púrra 3 hvítlauksrif olía 125 g rjómaostur 3/4 úr flösku af Heinz chili sósu 2/3 litri matreiðslurjómi 1/3 litri mjólk 1 msk Marocco krydd frá Noma (fæst í fylgi fiskum) Salt Aðferð: - Kjúklingabringur steiktar heilar og skornar í smáa teninga (ekki alveg í gegn)
- Paprika. laukur, púrra og hvítlaukur skorin og léttsteikt síðan sett í blandara og baukuð með hluta af kjúklingasoðinu
- Rjómaostur og restin af kjúklingasoðinu sett í stóran pott og osturinn látinn bráðna aðeins
- Grænmetinu er bætt út í, einnig chili sósunni og allt látið malla í 10 mínótur
- Síðan er rjómanum, mjólkinni og kjúklingnum bætt út í, einnig marocco kriddinu og allt látið malla í nokkrar mínótur
Gott er að bera súpuna fram með grófu brauði Í hverjum skammti eru u.þ.b 410 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og a-vítamíni |
|
|
|
|