|
Rækjufyllt rauðsprettuflök
(fyrir 4)
Hráefni:
3 msk olía
150 g rækjur
1 dl brauðmylsna
½ dl kaffirjómi
1 msk klippt steinselja
500 g kola eða rauðsprettuflök
1 tsk þurrkað dill
1 tsk paprika
2 msk sítrónusafi
Sjávarsalt
Aðferð:
- Blandið saman olíu, rækjum, brauðmylsnu, rjóma og steinselju og setjið til hliðar.
- Smyrjið fat, skerið fiskflökin að endilöngu og skiptið fyllingunni jafnt á flökin,
- Brjótið saman og látið samskeytin snúa niður þegar flökunum er raðað á fatið.
- Stráið papriku og dilli yfir og sjóðið í örbylgjuofni í 7 mín á PL 9 eða gufusoðið (tekur aðeins lengri tíma).
- Setjið síðan sítrónu og salt yfir, eftir að fiskurinn hefur verið tekinn úr ofninum.
Í hverjum skammti eru um 250 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og B12.
Berið fram með fersku salati og brúnum hrisgrjónum eða sætum kartöflum.
Hráefni:
400 g þorskur
2 msk. ólífuolía
½ tsk. basilíka
½ tsk. estragon
1 msk. steinselja
1 msk. graslaukur
1-2 dl mysa
2 stk. gulrætur
1 dl rifinn ostur 17 %
1 dl möndluflögur
salt og pipar
Aðferð:
-
Skerið þorskinn í jafna bita
-
Blandið saman kryddjurtunum og olíunni á disk
-
Veltið fisknum upp úr kryddblöndunni og setjið í eldfast mót
-
Skerið gulræturnar og steinseljuna í smáa bita og setjið í eldfasta mótið
-
Hellið mysunni yfir, stráið osti og möndluflögunum yfir, saltið og piprið
-
Bakið í miðjum ofni við 180ÚC í 12-16 mínútur
Í hverjum skammti eru 299 hitaeiningar og ríkulegt magn af E- og B12 vítamínum.
Berið fram með hrísgrjónum og salati. Sýrður rjómi með graslauk og lauk er tilvalinn sem sósa.
(fyrir 4)
Hráefni: 
600 g ýsuflak
2 tsk. salt
1½ laukur
3 pressaðir hvítlauksgeirar
3 msk. hveiti
½ tsk. pipar
2 egg
2 msk. olía til steikingar
1-2 tsk. aromat
1 stór gulrót
Aðferð:
-
Fiskurinn er roð- og beinhreinsaður, síðan hakkaður
-
Flysjið og skerið laukinn mjög smátt (eða í matvinnsluvél)
-
Hrærið fiskinn varlega saman við saltið, laukinn og gulræturnar í hrærivél.
-
Bætið hveiti út í og hrærið aðeins
-
Bætið svo við aromati og pipar
-
Sláið eggin sundur og látið út í og hrærið þar til deigið verður samfellt aftur
-
Mótið bollur með teskeið og steikið í olíu.
Í hverjum skammti eru 258 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og B12 vítamíni.
Berið fram með súrsætri sósu og hrísgrjónum.
(fyrir 4)
Hráefni: 
hveiti til hjúpunar
salt og sítrónupipar
600 g þorskur
1msk. matarolía
4 vorlaukar, einungis græni hlutinn saxaður
200 g sveppir
1 msk. sítrónusafi
2 msk. söxuð steinselja
70 g brauðrasp
Aðferð:
-
Kryddið hveitið með salti og sítrónupipar, veltið fiskinum upp úr því og þekið vel
-
Hitið olíuna á stórri pönnu
-
Skerið ýsuflakið í hæfilega jafnstóra bita
-
Steikið bitana í um 5 mín. á hvorri hlið, eða þar til þeir eru gegnsteiktir og búnir að fá á sig gullinn lit.
-
Setjið olíu á aðra pönnu á meðan fiskurinn er að steikjast og steikið laukinn og sveppina og látið krauma í 3 mín.
-
Hrærið sítrónusafanum steinseljunni og örlitlu salti saman við.
-
Færið ýsubitana upp á volgt fat og setjið sveppablönduna hjá. Haldið heitu.
-
Steikið brauðraspinn á pönnunni sem var notuð til að steikja grænmetið, nýtið olíuna sem eftir er á pönnunni.
-
Sáldrið því síðan yfir fiskinn og skreytið með agúrkusneiðunum.
Sósa:
50 g sýrður rjómi 5%
50 g létt smurostur
2 msk. söxuð steinselja
2 msk. graslaukur
Aðferð:
-
Blandið öllum hráefnunum saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
-
Hrærið vel í 3 til 4 mínútur.
Í hverjum skammti eru 289 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og fosfór
(fyrir 4)
Hráefni:
1 laukur
1 paprika
2 msk. olía
2 msk. hveiti
2 dl vatn
1 fiskikraftsteningur
2 dl matreiðslurjómi eða nýmjólk
600 g hvítur fiskur
Aðferð:
-
Flysjið og skerið laukinn og paprikuna í sneiðar og strimla.
-
Steikið í olíunni þar til laukurinn verður gylltur.
-
Dreifið hveitinu yfir og blandið vel.
-
Bætið vatninu og matreiðslurjómanum við.
-
Látið suðuna koma upp og bætið fiskiteningnum við.
-
Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita og setjið í sósuna.
-
Látið malla í sósunni í ca. 10 mínótur eða þar til hann er tilbúinn.
Í hverjum skammti eru 259 hitaeiningar og ríkulegt magn af B12 og C-vítamínum.
Berið fram með salati og hrísgrjónum eða ofnbökuðum kartöflubátum.
Glóðaður fiskur með kotasælu
(fyrir 4)
Hráefni:
600 g af ýsu eða þorski
1 paprika
3 tómatar
1 msk matarolía
½ tsk hvítlauksduft
1 tsk sítrónupipar eða Old Bay-fiskikrydd
Ostur (ekki of feitur)
kotasæla
2 msk sýrður rjómi, 5 eða 10 %
1 tsk rifin piparrót eða ½ tsk karrí
Aðferð:
- Roð og beinhreinsið flakið og leggið í olíuborið, ofnfast fat.
- Skerið paprikuna smátt og tómatana í sneiðar. Dreifið paprikunni yfir fiskinn og raðið tómatsneiðunum þar ofan á.
- Blandið saman matarolíu, hvítlauksdufti og sítrónupipar eða fiskikryddi.
- Penslið eða hellið kryddblöndunni yfir fiskinn og grænmetið.
- Glóðið réttinn í miðjum ofni í 5-6 mínútur.
- Takið fatið út og stráið rifnum osti yfir. Glóðið áfram í 2-3 mínútur eða þar til fiskurinn er hvítur í gegn.
Kotasælusósa: Blandið saman kotasælu, sýrðum rjóma og piparrót eða karríi.
Í hverjum skammti eru um 300 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og steinefnum.
Fiskur í tortillakökum
(fyrir 4)
Hráefni:
4 stk tortillakökur
400 g ýsa/þorskur
1 rauðlaukur
1 stórt hvítlauksrif
1 dós niðursoðnir tómatar
1 dós nýrnabaunir
1 msk engiferrót (ath. Er sterk)
Salt og svartur pipar
50 g rifinn ostur (17 eða 21%)
Olía
Aðferð:
- Skerið fiskinn í litla teninga, merjið hvítlaukinn og saxið laukinn.
- Byrjið á að steikja laukinn og hvítlaukinn á pönnu í olíunni.
- Bætið við tómötunum, nýrnabaununum, engiferrót, salti og pipar.
- Tortillakökurnar eru settar í álpappír og hitaðar í 10 mínútur í ofni.
- Fiskiteningarnir eru lagðir út í og látið malla í nokkrar mínútur.
- Deilið fiskmaukinu síðan jafnt á tortillakökurnar
- Vefjið þær upp og raðið í olíuborið eldfast mót .
- Smyrjið kökurnar með olíu (má sleppa) og stráið ostinum yfir og bakið þar til hann er orðinn gylltur.
Berið fram með fersku salati.
Í hverjum skammti eru um 400 hitaeiningar og ríkulegt magn af B12 og fosfór.
Karríþorskur
(fyrir 4)
Hráefni:
600 g þorskur,
Roð og beinhreinsaður
2 dl brún hrísgrjón
120 g hrein jógúrt
4 msk léttmajónes
2 tsk karrí
Sjávarsalt
100 g sveppir
2 gulrætur
70-100 g rifinn ostur (17%)
Aðferð:
- Stillið ofninn á 200 ÚC.
- Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningum á umbúðunum.
- Hrærið saman jógúrt, majónes, karrí og salti.
- Setjið soðin hrísgrjónin í smurt, ofnfast fat.
- Skerið fiskinn í bita og raðið honum yfir hrísgrjónin og stráið salti yfir.
- Sneiðið sveppina og gulræturnar og dreifið þeim yfir fiskinn.
- Hellið karrísósunni yfir réttinn.l
- Bakið í miðjum ofninum í 20-30 mínútur.
- Stráið ostinum yfir réttinn og bakið áfram þar til osturinn hefur fengið fallegan gyltann lit.
Berið fram með fersku salati.
Í hverjum skammti eru 380 hitaeiningar og ríkulegt magn af steinefnum og próteini.
|