Heim arrow Líkamsrækt arrow Uppskriftir arrow Kjötréttir
 

Innskráning
Notendanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

Kjötréttir  

Súrsætt svínakjöt (fyrir 4)

Hráefni:

  • 500 g svínakjöt
  • 3 msk ólífuolía
  • 2 blaðlaukar
  • ½ -1 rauð paprika
  • ½ -1 gul paprika
  • Paprikuduft
  • Salt og pipar
  • 3 cm engiferrót
  • 3 dl kjötkraftur
  • 2 msk tómatkraftur
  • 2 msk vínedik
  • 2 msk kínversk sojasósa
  • ½ -1 msk hunang
  • 75 g  philadelphia light
  • (eða annar magur smurostur)

Aðferð:

  1. Skerið kjötið í mjóa strimla.
  2. Skerið blaðlaukinn í sneiðar og saxið paprikuna.
  3. Afhýðið engiferrótina og saxið hana smátt.
  4. Steikið kjötið í olíunni og látið krauma í smá stund.
  5. Bætið grænmetinu útí, stráið kryddinu yfir og látið krauma í nokkrar mínútur.
  6. Setjið kjötkraft, sojasósu, tómatkraft og edik útí.
  7. Látið krauma undir loki í 10-15 mínútur.
  8. Bætið hunangi eftir smekk.
  9. Dragið pottinn af hitanum og setjið rjómaostinn útí og látið bráðna.

    Í hverjum skammti eru 427 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og B1-vítamíni.

Berið fram með brúnum hrísgrjónum og fersku salati.


 

Chili con carne (fyrir 4)

Hráefni:

  • 1  laukur
  • ½ græn paprika
  • 100 g nautahakk
  • 1 dl bitaðir tómata
  • 1/2 tsk salt
  • 1 hvítlauksrif
  • ½ tsk basilíka
  • Chilipipar (ath. Sterkur)
  • 2 dl nýrnabaunir niðursoðnar
  • 2 msk fínsöxuð steinselja
  • Ólífuolía til steikingar á grænmeti

Aðferð:

  1. Skrælið og saxið laukinn smátt.
  2. Takið kjarnann úr paprikunni skolið hann og skerið í strimla.
  3. Hitið olíuna, steikið laukinn og  paprikuna þar til það hefur meyrna. Setjið í skál.
  4. Setjið nautahakkið á pönnuna og steikið þar til það hefur fengið brúnan lit bætið þá paprikunni og lauknum útí.
  5. Bætið tómötum, pressuðum hvítlauknum og kryddunum útí og látið malla við miðlungshita í 10 mínútur.
  6. Skolið baunirnar vel undir köldu vatni, bætið útí og látið malla áfram í nokkrar mínútur.
  7. Setjið í skál og stráið steinselju yfir. Í  hverjum skammti eru 125 hitaeiningar og ríkulegt magn af  C- og E-vítamínum og trefjum. Gott að bera fram með fersku salati og grófu nýbökuðu brauði.  

Indverskar kjötbollut (fyrir 4)

Hráefni:
  • 450 g nautahakk ( 8-12 %)
  • 1tsk. Garam masala
  • ½ tsk. engiferduft
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • 1 tsk. cumin


Sósa:

  • 2-3 msk. olía
  • 1 -1½ laukur, brytjaður
  • 2½ sm kanilstöng
  • 4 grænar kardimommur
  • 1 lárviðarlauf
  • 4 negulnaglar
  • 1tsk. engiferduft
  • 1 stk. hvítlauksduft
  • ½ -1 tsk. chilliduft ( hér ræðst styrkurinn)
  • 1 tsk koríander
  • ¼ tsk. turmeric
  • 150 ml hnetu- og karamellu jógúrt
  • salt (eftir smekk)
  • 600 ml vatn  

Aðferð:

  1. Blandið saman hakki, garam masala, engifer, hvítlauk og cumin og setjið til hliðar.
  2. Hitið olíuna á stórri pönnu og steikið laukinn þangað til hann verður gullinbrúnn.
  3. Bætið út í kanilstönginni, kardimommum, lárviðarlaufi og negulnöglum og steikið í 1 mín.
  4. Takið af hitanum og hrærið út í engifer, hvítlauk, chilli, koríander og turmeric, einu í einu.
  5. Setjið aftur á hitann og steikið varlegar í 30 sekúndur.
  6. Bætið út í jógúrt og salti.
  7. Setjið lokið á pönnuna og eldið þangað til blandan verður þurr og olían hefur skilið sig frá kryddblöndunni og stigið upp á yfirborðið.
  8. Hrærið vatninu varlega sama við, setjið lokið á og sjóðið í 10-12 mín.
  9. Mótið 16-20 litlar bollur úr hakkinu og rennið þeim einni í einu út í sósuna.
  10. Setjið lokið á og sjóðið varlega í 30-40 mínútur.
  11. Þykkt sósunnar og magn er hægt að stjórna með því að bæta við vatni eða minnka það. (Sósan soðin hratt til að þykkja hana).

Í hverjum skammti eru 312 hitaeiningar og ríkulegt magn af  B12 og fosfór.

Berið fram með salati og/eða hrísgrjónum, mangochutney og indversku brauði (naan).


  Spænskur hrísgrjónaréttur ( fyrir 4)

Hráefni:

  • 2 dl vatn
  • ¼ tsk salt
  • 1 dl hrísgrjón
  • 4 sneiðar beikon (eðal)
  • 1 laukur
  • ¼ paprika
  • 250 g nautahakk (helst 7%)
  • 2 dl tómatsafi
  • ½ tsk salt
  • ½ tsk ensk sósa
  • ½ tsk ideal sósa
  • 1-2 dropar Tabaskosósa
  • 1 tsk paprika

    Aðferð:

  1. Sjóðið hrísgrjónin í 2 dl af vatni í 10 mín.
  2. Skerið beikon, lauk og papriku smátt.
  3. Setjið beikonið á kalda pönnu og láttu það brúnast. Takið það af pönnunni. Brúnið lauk, papriku og kjöt á bönnunni ( ekki bæta við olíu)
  4. Hrærið soðnum hrísgrjónum, tómatsaf, beikonbitum og kryddi saman við kjötið á pönnunni og hellið því í smurt eldfast mót.
  5. Bakið hrísgrjónaréttinn neðarlega í ofni við 200 C í 20 mín.

    Berið fram með grófu brauði og fersku salati.

Í hverjum skammti eru um 200 hitaeiningar og ríkulegt magn af C-vítamíni og próteini.


Moussaka(fyrir 4)

(

Hráefni:
1-2 eggaldin
1-2 msk ólífuolía
400 g nautakjöt (4% frá t.d. kjöthöllinni)
1-2 laukar, saxaðir
1 dós hakkaðirtómatar
1 lítil dós tómatþykkni (tómatpaste)
½  tsk salt
1 lárviðarlauf
3 msk fersk steinselja, söxuð
1 tsk pipar (ný malaður)
2 hvítlauksrif
1 tsk oregano

1 tsk rósmarín
1 dl kjötsoð (eða plantaforce)

brauðmilsna (má sleppa)

Sósa:
50 g hveiti
50 g olía eða smjör
5 dl léttmjólk
200 g rifinn ostur (17%)
3 egg
1 tsk salt
1/2 tsk múskat

 Aðferð

1.      Hitið ofninn í 180.

2.       Létt gufusjóðið eggaldinið og brúnið síðan í hluta af olíunni, takið af pönnu og geymið á diski.

 3.      Brúnið síðan hakk og lauk í olíunni sem eftir er.

4.      Bætið tómötum, tómatþykkni og kryddi útí, ásamt soði. Látið krauma í 20 mín.

Sósan

  1. Setjið olíuna í pott, ( bræðið smjörið) hrærið hveitinu saman við og þynnið með mjólkinni.
  2.  Sjóðið þar til sósan þykknar. Takið pottinn af og hrærið 150 g af osti, sundurslegnum eggjunum, salti og múskati saman við.
  3. Setjið kjöt og eggaldinsneiðar til skiptis í smurt eldfast mót og hellið sósunni yfir.
  4.  Stráið ostinum sem eftir er yfir og brauðmilsnunni.
  5. Bakið í 45 mín og berið fram með grófu brauði og fersku salati með fetaosti.

Í hverjum skammti eru 470 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og B12-vítamíni


fotur