Heim arrow Líkamsrækt arrow Uppskriftir arrow Grænmetisréttir
 

Innskráning
Notendanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

Grænmetisréttir  

 

Melónu- og gúrkusalat

(fyrir 4)

Hráefni:

1 gúrka

1 cantaloupemelóna (gallamelóna)

2 msk olífuolía

½ sítrónusafi

½ tsk.salt

nýmalaður svartur pipar

2 msk ferskt esdragon, smátt saxað

150 g Fetaostur

Aðferð:

  1. Afhýðið gúrkuna og skerið langsum, takið innan úr henni og skerið í bita.
  2. Gerið það sama við melónuna eða skerið hana í kúlur og setjið saman í skál.
  3. Blandið saman sítrónusafa, salti, pipar og estragon og blandið saman við.
  4. Dreifið fetaostinum yfir og stráið ferskum estragon-blöðum yfir.

Í hverjum skammti eru 193 hitaeiningar og ríkulegt magn af C- vítamíni og kalki.

Berið fram með fiski, kjöti eða pasta. Einnig gott eitt og sér með grófu brauði.


Papaja-sósa

Hráefni
  • 2 papaja
  • 1 lárpera
  • 4 stórir tómatar
  • ½ sítróna
  • 1 límóna
  • Salt og pipar
  • Fersk kórianderlauf 
 Aðferð:
  1.  Hreinsið og afhýðið papaja og avakadó og takið innan úr tómötunum.
  2. Skerið það í teninga og kreistið safann úr sítrónunni og límónunni yfir og kryddið.
  3. Blandið þessu vel saman.
  4. Saxið kórianderlaufin og stráið yfir. 
Sósan er góð með fiski, kjúklingi og einnig  með fersku eða soðnu grænmeti. 

Indverskar kartöflur

(fyrir 4)

Hráefni:

  • 625 g kartöflur
  • Engiferbiti (góður þumall)
  • 3 hvítlauksrif
  • 3 msk vatn
  • ½ tsk. turmeric
  • 1 tsk salt
  • ½ cayennne pipar
  • 5 msk grænmetisolía
  • 1 tsk fennelfræ

Aðferð:

  1. Setjið engifer, hvítlauk, turmeric, salt og pipar í blandara.
  2. Blandið í mauk
  3. Hitið olíuna á pönnu á miðlungshita, þegar hún er orðin heit setjið þá fennel fræin út í
  4. Látið þau steikjast í fáeinar sekúntur og setjið engifer/hvítlauksmaukið út í
  5. Steikið og hrærið í 2 mínútur
  6. Bætið kartöflunum sem búið er að skera í listuga bita út í
  7. Steikið í 5 til 7 mínúrur á miðlungshita. Hrærið annaðslægið varlega.
  8. Kartöflurnar eru tilbúnar þegar þær hafa tekið á sig gullbrúna húð.

Í hvrjum skammti eru rúmlega 100 hitaeiningar og ríkulegt magn af trefjum og steinefnum 

 


Franst salat (fyrir 4)   Prenta 

Hráefni:

1 dós gular baunir

1 dós langar grænar baunir (má sleppa)

2 tómatar

3 harðsoðin egg

1/2 laukur

1 dós túnfiskur í vatni

Sósa:

1 tsk. franst sinnep

1 tsk. rauðvíns vínedik

1-2 msk ólífuolía´

salt og pipar

Aðferð: 

  1. Skolið baunirnar
  2. Hellið vatni af túnfisknum og skerið tómata og egg í báta
  3. Skerið laukinn smátt
  4. Blandið öllu saman og setjið í skál

 Í Hverjum skammti eru um 90 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteinum


Grænmetisbaka (fyrir 4)   Prenta 

Hráefni:

  • 2 ½ dl hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ¼ tsk salt
  • 1 msk olía
  • 1 dl mjólk
  • 1 msk hveitiklíð

Aðferð: 
  1. Blandið öllum þurrefnunum saman í skál, vætið í með olíu og mjólk.
  2. Hnoðið og breiðið út í kringlótta köku og klæðið formið með deiginu. 

Hráefni:

  • 2 msk. matarolía
  • 1 paprika
  • 1 meðalstór laukur eða blaðlaukur
  • 1-2 hvítlauksrif
  • 2 meðalstórar gulrætur 150 g hvítkál
  • 2-3 tómatar
  • ½ tsk. oreganó
  • ½ tsk. basilíka
  • ½ tsk. tímían 1½ dl niðursoðnir maukaðir tómatar
  • 1 dl rifinn ostur

Aðferð: 

  1. Kveikið á ofninum og hreinsið og skerið grænmetið smátt (tómatana í sneiðar)
  2. Léttbrúnið lauk, hvítlauk og papriku í olíu og bætið gulrótum og hvítkáli saman við og hitið vel í gegn. Kryddið og bætið niðursoðnum tómötum út í.
  3. Látið sjóða við lágan hita í 5 til 10 mín.
  4. Sáldrið hveitiklíðinu á bökubotninn.
  5. Smyrjið sósunni yfir botninn, raðið tómatsneiðunum ofan á og stráið ostinum yfir.
  6. Bakið í miðjum ofni við 200-225 ÚC í u.þ.b. 25 mín.
  Í hverjum skammti eru 334 hitaeiningar og ríkulegt magn af fosfór og C-vítamíni.

Pönnukökur/klattar með grænmetismauki og mangósósu   Prenta 

Hráefni:

  • 2 dl hveiti ( hægt að nota heilhveiti eða spelt að hluta)
  • 1 tsk lyftiduft
  • ¼ salt
  • ¾ msk olía
  • Nokkrar msk vatn (fer eftir smekk hvað kökurnar eiga að vera þykkar)

Aðferð:

  1. Blandið öllum hráefnum saman. Hnoðið. Hyljið og látið hefast í klst.
  2. Skiptið deiginu í fjóra parta. Fletjið partana út í litlar pönnukökur. Ekki hafa áhyggjuar af löguninni !
  3. Bakið báðum megin á heitri pönnu.

Grænmetismauk

Hráefni:

  • 1 msk ólífuolía
  • 1 tsk turmerik
  • ½ tsk kumin
  • ½ allrahanda eða 1tsk plantaforce
  • ½ tsk malaður engifer
  • ½ laukur, fínsaxaður
  • 1 hvítlauksrif, fínsaxað
  • 2 kartöflur, fínsaxaðar
  • 1 dl niðursoðnar kjúklingabaunir
  • 1 dl appelsínugul paprika, söxuð smátt
  • ¾ dl vatn
Aðferð:

  1. Steikið kryddið í olíunni. Látið malla við meðalháan hita í 5 mínútur
  2. Setjið hvítlauk og lauk saman við. Steikið áfram í 2 mín
  3. Setjið grænmetið saman við. Hrærið
  4. Hellið vatni yfir. Setjið lok á og láti malla í 15-20 mínútur, eða þar til allur vökvi er uppgufaður og kartöflurnar soðnar
  5. Setjið maukið ofan á pönnukökurnar.

Mangósósa:

Hráefni:

  • ½ vel þroskaður mangó, skorinn í litla teninga (hægt að nota frosinn mangó)
  • ½ dl rauðlaukur, fínsaxaður
  • ½ rauður chillípipar, fínsaxaður
  • Safi af ½  límmónu
  • 1 msk kóríander, fínsaxað
  • Salt og pipar

 Aðferð:

  1. Blandið öllu saman með töfrasprota eða matvinnsluvél og smakkð til með salti og pipar
  2. Notið sem meðlæti og rúllið inní kökurnar með maukinu eða til hliðar
  3. Ef pönnukökurnar eru þykkar er óþarfi að rúlla þeim upp.

Í hverjum skammti eru um 300 hitaeiningar og ríkulegt magn af próteini og C- vítamíni.

Sæt súr baunapottréttur (fyrir 4)   Prenta 
Hráefni:
  • 2 msk olía
  • 2 saxaðir laukar
  • 4 gulrætur í bitum
  • 5 sneiðar ferskur ananas
  • 6 dl hvítar baunir, soðnar 3 dl

Sósa:

  • 1,5 dl ananassafi (pressaður ferskur eða úr fernu)
  • 4 msk sojasósa
  • 4 msk rauðvínsedik
  • 4 msk tómatþykkni

1.       Brúnið lauk, gulrætur og ananas í olíunni í potti.

2.       Bætið baununum og öllu sósuefninu þar út i .

3.       Sjóðið í 15 mín.

Í hvrjum skammti eru 125 hitaeiningar og ríkulegt magn af trefjum og fólasíni.

Borið fram með brúnum hrísgrjónum, brauði og fersku salati

Meðferð á baunum;

1.       Baunirnar eru lagðar í bleyti daginnn fyrir notkun.

2.       Vatninu af þeim er hent og þær soðnar í eina klukkustund í nýju vatni án nokkurs krydds.

Þá eru þær tilbúnar í réttinn. Soðnar baunir er hægt að frysta. Þessar baunir er hægt að nota líkt og kjöthakk í ýmsar uppskriftir.


Gott grænmetissalat (fyrir 4)   Prenta 

 Hráefni: 

  •  ½ -1 haus lambhagasalat
  •  Nokkur blá vínber 
  •  2 tómatar
  •  2-3 sveppir 
  •  1/3 agúrka
  •  ½ rauð paprika 
  •  Fetaostur í kryddolíu
  • 1 tsk balsamik edik
  • ½ -1 rauðlaukur
 Aðferð:
  1. Hreinsið grænmetið og raðið því á hreint viskustykki.
  2. Rifið salatið niður í skál, haldið eftir 1 blaði til að skreyta með.
  3. Skerið tómatana í þunna báta, sveppina i þunnar sneiðar og paprikuna í þunnar lengjur og leggið yfir salatið í skálinni.
  4. Skerið agúrkuna í sneiðar og sneiðarnar síðan í fernt. Skerið vínberin í tvennt og takið úr þeim steinana og bætið þessu út i skálina.
  5. Skerið rauðlaukinn í þunnar hringi og leggið yfir grænmetið.
  6. Setjið fetaostinn yfir og hafið magnið eftir smekk.
  7. Blandið saman 1 msk af olíu af fetaostinum og 1 tsk af balsamik ediki og hellið yfir salatið.

 Í hverjum skammti eru um 160 hitaeiningar og ríkulegt magn af C-vítamíni og steinefnum.


Kjúklingabauna pottréttur (fyrir 4)   Prenta 

Hráefni:

  • 2 ½ dl kjúklingabaunir
  • 1 stór laukur
  • 4 stk hvítlauksrif
  • 1 tsk garam masala
  • 500 g niðursoðnir tómatar
  • 1 ¼ dl rúsínur
  • 1 ¼ dl sveskjur eða apríkósur
  • 1 msk hnetusmjör
  • 1 ½ dl eplasafi
  • 1 ¼ dl ósaltaðar hnetur
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Salt og mulinn pipar eftir smekk
Aðferð:
  1. Baunir í krukku, niðursoðnar baunir eða þurrkaðar lagðar í bleyti í sólahring notaðar
  2. Saxið lauk og hvítlauk og léttsteikið í olíu
  3. Ávextirnir brytjaðir og þeim bætt á pönnuna ásamt tómötum, hnetusmjöri, eplasafa og svolítlu vatni og látið sjóða saman í sa. 20 mín.
  4. Hneturnar eru ristaðar létt
  5. Baununum blandað saman við réttinn á pönnunni og hitað vel
  6. Að síðustu er sítrónusafanum bætt í ásamt helmingnum af hnetunum og salti og pipar
  7. Hinum helmingnum af hnetunum stráð yfir réttinn og borið fram
Í hverjum skammti eru um 320 hitaeiningar og ríkulegt magn af trefjum og B1- vítamíni. Berið fram með grófu brauði og fersku grænmetissalati.

Kjúklingabaunasalat (fyrir 4)   Prenta 

Hráefni:

  • 2 dl kjúklingabaunir (mælt áður en þær eru lagðar í bleyti) eða notaðar tilbúnar í vatni
  • 3 dl gróft pasta
  • ½ dl niðursoðin rauð paprika
  • ½ - 1 rauðlaukur

Sósa:

  • 2 msk matarolía
  • 3 msk rauðvínsedik
  • ½ tsk oreganó
  • ½ dl steinselja
Aðferð:

  1. Baunirnar lagðar í bleyti yfir nótt. Vatninu hent.
  2.  Þær síðan soðnar í klukkutíma í nýju vatni.
  3. Pastað soðið. Þessu blandað saman ásamt paprikunni og lauknum.
  4. Hráefnunum í sósuna blandað saman og hellt yfir. Látið standa yfir nótt.
Í hverjum skammti eru 330 hitaeiningar og ríkulegt magn af B1-vítamíni og fosfór.

 


Grískur baunaréttur (fyrir 4)   Prenta 
Hráefni:
  • ½ kg soðnar hvítar baunir (flageolet)
  • 1-2 hvítlauksrif
  • 12 stk. svartar ólífur
  • 10-12 stk. kokteiltómatar
  • 2 msk. graslaukur klipptur
  • ½-1 laukur
  • ½ bolli ólífuolía
  • 4 msk. sítrónusafi
  • salt og pipar
Aðferð: 
  1. Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt eða notið niðursoðnar baunir.
  2. Hellið soðinu og setjið nýtt vatn á þær og sjóðið þar til þær eru linar.
  3. Sigtið vatnið frá og látið þær kólna.
  4. Pressið hvítlaukinn, skerið ólífurnar í tvennt og tómatana í litla báta og blandið baununum saman við.
  5. Blandið saman olíu, sítrónusafa og kryddi, hellið yfir blönduna og klippið graslaukinn yfir og leggið þunna laukhringi efst.

 Í hverjum skammti eru 173 hitaeiningar og ríkulegt magn af trefja- og steinefnum.  

Berið fram með grófu brauði eða flatkökum. 


Grískt salat (fyir 4)   Prenta 
Hráefni:
  • 1 poki jöklasalat
  • 3 tómatar (helst bufftómatar)
  • ½ salatlaukur eða rauðlaukur
  • 10-15 svartar ólífur
  • ½ dós fetaostur
  • 3 msk. af olíunni af fetaostinum
  • eða 2½ msk af ólífuolíu og ¼  af balsamikedik
  • salt og pipar  á hnífsoddi
 Aðferð:
  1. Salatið rifið niður í víða skál eða fat.
  2. Tómatarnir skornir í sneiðar.
  3. Laukurinn skorinn í næfurþunnar sneiðar.
  4. Öllu raðað fallega yfir salatið svo litirnir njóti sín vel og laukhringirnir losaðir í sundur og raðað efst. 
Í hverjum skammti eru 152 hitaeiningar og ríkulegt magn af E- vítamíni og kalki.  

Grískt salat er einnig gert án jöklasalatsins. Borið fram eintómt, með góðu grófu brauði eða með fiski og kjöti.

 

Gulrótar salat (fyrir 4)   Prenta 

Hráefni:

  • 1-2 gulrætur
  • 75 g hvítkál
  • 1 dl brytjaður ananas
  • ½ dós sýrður rjómi 10 %
  • 1 tsk. þurrkað dill
  • e.t.v. örl. Ananassafi

 Aðferð:

  1. Hreinsið og rífið gulræturnar
  2. Brytjið hvítkálið og ananasinn smátt
  3. Hrærið sýrða rjómann og bættið e.t.v. aðeins ananasvökva út í.
  4. Blandið öllu sman í glæra skál og stráið svolítlu dilli yfir til skreytingar.
Í hverjum skammti eru um 60 hitaeiningar og ríkulegt magn af C- og A- vítamíni.

Brokkólí salat (fyrir 4)   Prenta 

 Hráefni: 

  •  1 stk Brokkólíhöfuð
  •  1 stk rauðlaukur 
  •  1 stk rauð paprika
  •  Rúsinur ( eftir smekk)

 Aðferð:
  1. Brokkólíið þvegið og sett í heitt vatn.
  2. Suðan látin koma upp og um leið er kálið veitt upp úr og kælt.
  3. Brokkólíhöfuðið er skorið í litla bita.
  4. Rauðlaukurinn og paprikan skorin í ekki of smáa strimla.
  5. Blandað varlega saman og rúsínum stráð yfir.

 Sósa: 

  •  4 msk Sýrður rjómi (5 eða 10%)
  •  Karrý eftir smekk
  •  Salt og pipar á hnífsoddi

Öllu blandað saman og sett yfir salatið.

Í hverjum skammti eru um 90 hitaeiningar og ríkulegt magn af C-vítamíni. Gott með fiski eða kjöti, einnig tilvalið sem aðalréttur með grófu brauði.


fotur