|
|
|
|
|
|
|
|
ÁgripDANSleikhúsið hefur staðið fyrir sýningum í Borgarleikhúsinu og víðar frá árinu 2002. Það hóf göngu sína sem þróunarverkefni Dansræktar JSB/Danslistarskóla JSB. Með tilvist DANSleikhússins má segja að sprottið hafi upp öflugt og framsækið atvinnuleikhús danslistamanna sem hefur kryddað íslenska dansleikhúsmenningu svo um munar á undanförnum árum. Kveikjan að stofnun DANSleikhússins var að kanna áður ótroðnar slóðir í íslenskum listdansheimi og að skapa tækifæri fyrir íslenska atvinnudansara og danshöfunda til að vinna við og þróa list sína. DANSleikhúsið leggur áherslu á frumsköpun í leikhúsi og samþættingu ólíkra listgreina við gerð leikhúsverka. Dansrækt JSB ehf. hefur verið helsti stuðnings- og styrktaraðili DANSleikhússins hingað til og gert þennan vettvang að veruleika. DANSleikhúsið er meðlimur í SL – Bandalagi sjálfstæðra atvinnuleikhúsa. Fjölmargir hafa tekið þátt og komið að sýningum DANSleikhússins hingað til s.s. danshöfundar, leikstjórar,leikarar,kvikmyndagerðarmenn,tónskáld,hljóðfæraleikarar, ljósa – og búningahönnuðir og að sjálfsögðu frábærir danslistamenn.Nánari upplýsingar veitir Irma Gunnarsdóttir, netfang: irma@internet.is |
|
|
|