Hafðu samband

Heimilisfang: Lágmúli 9, 105 Reykjavík Sími: 581-3730 Netfang: [email protected]

+354-581-3730

[email protected]

Þórdís Schram

Þórdís Schram

Þórdís er aðstoðarskólastjóri Danslistarskóla JSB og  fagstjóri  listdansbrautar JSB.

Þórdís útskrifaðist frá JSB árið 2000, þaðan lá leiðin til London Studio Centre sem hún útskrifaðist frá árið 2003. Alla tíð síðan hefur hún kennt hjá JSB samhliða dansverkefnum hér á landi sem og erlendis. Hún hefur tekið þátt í allskyns dans og tónlistarverkefnum, má nefna DANSleikhúsið-sem var virkur dansflokkur á vegum JSB, Reykjavik Dance festival, Jazzfestival, listahátið í Færeyjum og á Íslandi, INTOTO nemendadansflokkur LSC, söngleikurinn Hafið Bláa og tónlistarsýningin Tina Turner. Einnig hefur hún samið dansa fyrir ótal nemendasýningar JSB, fyrir Unglist og menntaskóla sönleikji, og ýmsar uppfærslur úti á landi og í Færeyjum.

Einnig tók hún þátt í Dans Dans Dans með hópnum ATP(allt kennarar frá JSB) og komst hópurinn í úrslit það árið. Undanfarið hefur Þórdís verið meðlimur og einn af stjórnendum Sirkus Íslands samhliða starfi sínu hjá JSB, og sýnir þar loftfimleika og sinnir almennum sirkusstörfum. Hefur hún sótt mörg sirkus og dansnámskeið erlendis, og þar á meðal tekið þátt í CARE sem eru tilraunaverkefni valinna dansara og sirkusmanna um heim allan, var hún þar sem fulltrúi Íslands.