
Nína Margrét útskrifaðist af Listdansbraut JSB árið 2020 og hefur starfað í JSB síðan, bæði sem líkamsræktarkennari og danskennari.
Hún er menntaður einkaþjálfari og útskrifaður heilsunuddari. Ásamt því er hún með CrossFit L1 réttindi og er Body Reroll kennari. Hún kláraði Dance Choreography áfanga við Queensland University of Technology í Ástralíu, þar sem hún öðlaðist frekari reynslu og þekkingu á danssköpun og uppsetningu dansverka.
Nína stundar nú nám í næringarfræði við Háskóla Íslands samhliða kennslu og þjálfun.
Hún hefur mikinn áhuga á því að tengja saman dans, styrktarþjálfun, hreyfingu og heilsu og leggur áherslu á að skapa fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar.