Haustið er alltaf í miklu uppáhaldi hjá okkur ❤️
Þá fyllist húsið okkar af duglegum konum og spenntum dansbörnum og það er ekkert betra!!
Vetrartaflan er búin að rúlla í 3 vikur og nú þegar er orðið fullbókað í þónokkra tíma!
Engar áhyggjur samt! Ef þú átt eftir að tryggja þér pláss þá hvetjum við þig til að hafa samband í s. 581-3730 og við aðstoðum þig við að finna tíma sem hentar þér!
ToppForm og FitForm tímarnar eru sínum stað!
Tímatöfluna okkar finnur þú HÉR
Fyrstu DansForm námskeið vetrarins fóru af stað í síðustu viku. Þau hafa verið gríðarlega vinsæl hjá gömlum (og nýjum!) dönsurum.
Næstu 5 vikna námskeið byrja 19. október – nánari upplýsingar þegar nær dregur!


