
Þol og teygjur: Kröftug þrek-og þolþjálfun í 10-15 minútur.Teygjur og slökun í lokin.
Lotur: Samnefnari yfir markvissa niðurröðun þrek- og þolæfinga þar sem tekið er á af krafti í mislangan tíma í senn (HIIT- High Intensity Interval Training). Auðvelt að sníða æfingar að þörfum hvers og eins. Hvort sem þú ert að byrja eða í hörkuformi geturðu náð hámarks árangri!
Mix: Fjölbreyttar æfingar, sitt lítið af hverju, lóð, stangir, pallar, boltar ofl.
Miðja: Styrktaræfingar fyrir undirstöðuvöðva í kvið, baki og mjöðmum.
Mótun: Mótandi æfingar fyrir kvið-, rass- og lærvöðva.
Mótun/teygjur: Mótandi æfingar fyrir kvið-, rass- og lærvöðva með teygjum í lok tímans.
Tabata: Japanskar æfingalotur þar sem tekið er á af fullum krafti í 20 sek. í senn með 10 sek. hvíld á milli. Hver Tabatalota varir í samtals 4 mínútur. Tabata er eitt afbrigði af HIIT æfingakerfinu.
Þol: Fjölbreyttar æfingar þar sem hver og ein ræður hversu rösklega er tekið á. Þolþjálfun miðast við að auka hjartsláttartíðnina og styrkja þar með hjartað, lungun og æðakerfið.
Stöðvar: Fjölbreytilegum þol-og þrek æfingum raðað niður á stöðvar. Notast er við húllahringi, lóð, palla ofl.
Teygjur: Hressandi upphitun, liðleiki og teygjur.
Vaxtarmótun: Unnið með þyngri lóð og gerðar styrktaræfingar, teygjur í enda tímans.
Styrkur og teygjur: Æfingar sem miðast við að styrkja vöðva og bein og efla grunnbrennslu líkamans. Teygjuæfingar í lokin sem stuðla að góðri vöðvasamvirkni og liðleika. Unnið með lóð, stangir, eigin líkamsþyngd ofl.
Miðja/teygjur: Styrktaræfingar fyrir undirstöðuvöðva í kvið og baki svo endað með slökunarteygjum.
Yoga: Tímarnir verða fjölbreytilegir og sniðnir að þörfum þátttakenda. Sjá meira um Gyðu hér