jsb_logo

Kennari

Arndís Guðmundsdóttir

Þjálfari

Um kennara

Arndís hóf nám hjá Jazzballettskóla Báru árið 1975. Allar götur síðan hefur dans og hreyfing verið partur af hennar lífi. Arndís var í fjölda nemendasýninga og verkum sem hafa verið sett upp á vegum JSB og dansaði meðal annars með Dansflokki JSB. 

18 ára byrjaði Arndís að kenna og hefur núna kennt hjá JSB í meira en 30 ár.

Á ferli hennar sem kennari hafa komið straumar og stefnur og ýmiss konar æfingaform, sum eru langlíf en önnur hverfa jafn fljótt aftur.  Æfingarkerfi Arndísar eru þróuð út frá þessum ólíku stílum og aðlagað að hverjum hópi fyrir sig. JSB kerfið er klassískt og hefur staðið tímans tönn. Skemmtilegasti kokteillinn finnst henni vera JSB leikfimi, pílates og yoga.

Sem mannfræðingur veit Arndís fátt skemmtilegra en að vera í lifandi samskiptum við fólk og kenna líkamsrækt við góða tónlist. Þar sem hún hef bakgrunn sem dansari hefur henni þótt skemmtilegast að nota æfingakerfi sem tekur á sem flestum vöðvahópum líkamans og byggir upp á sama tíma innri styrk og sveigjanleika.

Tímar:

Líkamsrækt JSB