
Gyða æfði jazzballett hjá JSB í 9 ár. Á þeim tíma tók hún þátt í fjölda sýninga á vegum Dansflokks JSB og dansaði m.a. stærsta hlutverkið í Evítu sem sýnt var á Hótel Sögu og fleiri stöðum úti á landi.
Gyða starfaði um tíma sem jazzballettkennari og rak m.a. sinn eigin dansskóla í Vestmannaeyjum.
Hún hefur unnið sem líkamsræktarkennari frá árinu 1980 og er með réttindi sem þolfimikennari, yoga-kennari og rope-yoga kennari.
Gyða er einnig menntaður grunnskólakennari, námsráðgjafi og leiðsögumaður.