jsb_logo

Kennari

Karitas Guðrún Pálsdóttir

Þjálfari

Class Schedule

  • Föstudagur:06:15 - 07:05
  • Föstudagur:07:15 - 08:05

Um kennara

Karitas Guðrún er hóptímaþjálfari og hefur kennt hotfit, spinning og butlift síðustu ár. Hennar helstu áhugamál eru hreyfing, þjálfun og heilbrigður lífsstíll. Hún stundar lyftingar og styrktarþjálfun af kappi, hleypur, fer í crossfit og finnst æðislegt að fara í göngutúra og fjallgöngur. 

Karitas æfði jazzballett í JSB á yngri árum en frá 15 ára aldri hefur hún stundað líkamsrækt af miklu kappi, bæði í tækjasal og hóptímum. Árið 2022 keppti hún fitness og segir það tímabil hafa verið virkilega lærdómsríkt og krefjandi. 

Karitas er með einkaþjálfararéttindi frá ISSA og hefur sótt þjálfaranámskeið í pilates á Íslandi. Hún stundar núna BS nám í næringarfræði og stefnir á mastersnám í framhaldi af því.